Ég heiti Linda Jónsdóttir og ég hef alltaf haft áhuga fyrir dýrum. Alvöru fyrst hundur fjölskyldunnar var þegar ég var 5 ára þegar Írski setterinn Garpur kom inn í lífið okkar. Pabbi mætti með hann á hundasýningar og við börnin stóðum á hliðarlínunni og aðalsportið hjá okkur var að fá frí bein frá ýmsum aðilium. En eftir að hann féll frá þá vorum við hundlaus í einhvern tíma og það mátti ekki koma aftur hundur inná heimilið.
Árið 2006 þá var ég að leita mér að hundi þegar bróðir minn ákvað að vera með mér í þessu þá fengum við okkur Siberian husky tíkina Hulduheims Úlfynju Nölu árið 2007 þegar hún var orðin 8 vikna. Allir í fjölskyldunni féllu fyrir henni enda alveg einstök enda svo blíð og góð. En hún var alltaf mín og eftir það féll ég gjörsamlega fyrir hundum, sýningum og hundafimi. |
2010 náði ég plata móður mína til að fá sér og við byrjuðum að leita eftir tegund sem myndi henta henni og varð Papillon fyrir valinu og í apríl 2010 fæddist Hálsakots Desiree Le Grande og það var ekki bara mamma sem féll fyrir þessari tegund það var líka ég.
Þótt að þessi tegund sé lítil þá er hún með stórt hjarta og vill gera allt mann, hvort sem það er bara að kúra upp í sofa eða fara í langa göngutúra upp á fjöll. Í febrúar 2012 bættist síðan önnur papillon tík inn á heimilið og það er hún Butterfly's Kisses Chiquitita og ég gjörsamlega féll fyrir henni það sem hún fann sér ekki að gera, stökkva út um glugga heima, hlaupa um eins vitleysingur eða kúra við hausinn á manni þegar maður sefur. Hundarnir mínir eru fyrst og fremst frábær félagsskapur og stór hluti af fjölskyldunni og allt annað er bonus. En afhverju Multi Star´s? Ég var í rúmt ár að leita mér að ræktunarnafni og það var alltaf Multi Star´s sem var fast í höfðinu á mér . Eftir að hafa íhugað nafnið þá fannst mér þetta vera frekar egóist og hvað ef ég fæ ljóta hvolpa en síðan kom upp sú staða að okkar eigin hundar eru okkar stjörnur hvort sem það er eitthvað hundinum. Ég tala nú bara út frá sjálfri mér varðandi með Siberian Husky tíkina mína þar sem hún er með hringað skott sem er talið vera galli því að þeir eiga ekki að láta skottið snerta bakið en betri hund er ekki hægt að hugsa sér. |